AZURE

Microsoft Azure er sífellt vaxandi þjónustu svíta sem hýst er í skýinu og hjálpar þínu fyrirtæki að keppa á síbreytilegum alþjóðalegum markaði. Það gefur þér möguleikan á að byggja upp, stjórna og veita aðgengi að þínum kerfum um allan heim. Skýið er fyrir alla og er aðgengilegt öllum fyrirtækjum, stórum sem smáum.

FLOW & LOGIC APPS

Með Microsoft Flow getur þú búið til sjálfvirkt vinnuflæði milli Dynamics 365 forritanna til 200 annarra kerfa til að fá tilkynningar, safnað gögnum, samstilla skrár o.fl.

POWER APPS

Með Power Apps getur þú smíðað smáforrit (app) á nokkrum klukkustundum í stað margra mánaða. Smáforritið getur sótt gögn auðveldlega úr öllum áttum og keyrir á öllum stýrikerfum.

SAMÞÆTTINGAR

Þrátt fyrir að stöðluð útgáfa af Dynamics AX bjóði um á margar samþættingar þá mæta þær ekki alltaf þörfum viðskiptavinarins. Hvort sem að þú ert að smíða tengingar til að sýna gögn úr öðru kerfi eða flókna samþættingu, sem þarf að halda tveim kerfum samstilltum, þá hefur Dynamics AX verkfærin til að sækja og birta þau gögn sem þú þarft.